Circulation Hock Sleeves
Incrediwear Equine
-
Only 10 left in stock
Vörulýsing
Circulation Hock Sleeves
Veittu hestinum þínum öflugan stuðning og bata með Incrediwear Equine hækilsokkum, sem eru hannaðar til að draga úr bólgu, linna stirðleika og styðja við gróanda í liðum afturfóta.
Hækilsokkarnir eru tilvaldir fyrir hesta sem eru að jafna sig eftir vandamál tengd hækilliðum eða hreinlega til að fyrirbyggja vandamál hjá hestum sem eru undir miklu þjálfunarálagi. Þær virkja blóð- og sogæðaflæði með efni sem inniheldur germaníum og kolefni. Með því að auka blóðflæði og styðja við náttúrulega hitastjórnun líkamans draga þær úr bólgu, stuðla að gróanda og stytta batatíma — án þrýstings eða ískælingar.
Hvort sem þær eru notaðar eftir álag, í flutningi eða yfir nótt, veita hækilhlífarnar markvissan stuðning sem hjálpar til við að viðhalda liðleika og þægindum.
Hvort sem hesturinn þinn er að ná sér eftir þjálfun, meiðsli, liðagigt eða flutninga, veita Incrediwear Equine hækilsokkarnir öruggann og vísindalega studdan valkost í stað þrýstingsvafninga, íspoka eða bólgueyðandi lyfja (NSAIDs).
Helstu Kostir
Dregur úr bólgu og bjúg
Eykur blóðflæði og súrefnisflutning
Bætir hreyfigetu og liðþægindi
Styður við heilbrigða endurbyggingu vefja
Öruggt til langtímanotkunar eða notkunar yfir nótt
Þurr Notkun – Blóðflæði og bati
Notið til endurheimta eftir æfingu, yfir nótt eða við flutninga.
Hjálpar við liðagigt, stífleika og væga bólgu.
Inniheldur innbyggða sílikonfesti til að sokkurinn sígi ekki.
Blaut Notkun – Kæling og bólguminnkun
Leggið í kalt vatn, vindið úr og setjið á.
Hafið á í 30–60 mínútur, takið af þegar sokkurinn er þurr.
Tilvalið við miklum eymslum, eftir þjálfun eða til að styðja bata eftir sprautu í liðamót.
Eiginleikar Vöru
- Par af hækilsokkum (vinstri + hægri)
- Innbyggður poki yfir hófana til að verja sokkinn gegn sköflum og hóffjöðrum
- Vistvæn (ergonomic) 3D hönnun – engin franskrennilsbönd (Velcro), rennilásar eða þrýstipunktar
- Sílikon band gegn því að sokkurinn sígi, innbyggt efst.
- Má fara í þvottavél
- Ein stærð
Stærð
Incrediwear Equine Hækilsokkarnir eru hannaðir í einni stærð sem á að passa vel flestum íslenskum hestum, með teygjanlegri, vistvænni hönnun.
Mældur við hámarks teygju passar hækilsokkurinn fyrir efra ummál á hækil sem er um það bil 48–50 cm.
Einkenni og meiðsl sem geta notið góðs af hækilsokkunum
- Bólga í tarsocrural liðamótum (bog spavin, bone spavin, synovitis)
- Almenn liðagigt í hækil (aldurstengd eða bati eftir sprautur)
- Sinaskeiðabólga (Suspensory ligament desmitis) (uppruni í afturfótum eða miðhluta)
- Sinabólga í SDFT/DDFT (ofnotkun, tognun, álag vegna flutninga)
- Þykknun eða samdráttur í hringlaga liðbandi (Annular ligament)
- Þroti eftir hvíld í stíu eða flutninga
- Windpuffs - (bólga í kjúku eða sinaslíðri)
- Eymsli í mjúkvefjum eftir keppni eða harðan jarðveg
- Bati eftir sprautur eða bylgjumeðferð
- Eymsli eftir æfingu
- Bati eftir flutninga og forvarnir gegn bólgu í löngum ferðalögum
- Áframhaldandi endurhæfing liða eða sina