Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna Frá Jörð ehf.
Upplýsingum er safnað þegar notendur heimsækja netverslun eða panta vörur frá fyrirtækinu og að auki þegar þeir skrá sig á póstlista eða búa til aðgang fyrir vefverslun. Einstaklingum sem heimsækja netverslunina gefst tækifæri á að uppfæra stillingar er varða gagnaöflun og hafa þannig áhrif á upplýsingar sem safnað er um þá, en slíkt kann þó að hafa áhrif á virkni síðunnar.
Frá Jörð ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu.
Meðferð Frá Jörð á persónuupplýsingum er samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma á Íslandi.
Varðveisla og öryggi gagna
Frá Jörð leitast ávallt við að tryggja örugga varðveislu persónuupplýsinga. Vefverslunin er keyrð á vefverslunarkerfi Shopify sem notast við SSL-vottorð.
Shopify er viðurkennt sem PCI DSS vottaður aðili sem er öryggisstaðall sem tryggir meðferð kortaupplýsinga. Nánari upplýsingar getur þú séð á vef Shopify.
Frá Jörð getur aldrei ábyrgst gagnaleka sem kominn er til vegna þriðja aðila eða vegna netárása. Notendum er bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þeir telja hættu á að tilteknar upplýsingar sem þeir hafa gefið okkur séu í hættu.
Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir atvikum til þín eftir því sem lög mæla fyrir um.
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við?
Við notum persónuupplýsingar alla jafna í þeim tilgangi að virkja aðgang þinn að vefsíðum okkar, veita þér betri þjónustu og til að upplýsa þig um vörur, tilboð og nýjungar sem við teljum að þú hafir áhuga á. Þetta eru persónuupplýsingarnar sem Frá Jörð kann að safna um þig:
-
Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, kyn, heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer. Þetta gerum við til þess að geta afhent þér vörur og þjónustu og senda þér tilkynningar um nýjar vörur.
-
Greiðsluupplýsingar, t.d. debet- eða kreditkortanúmer.
-
Upplýsingar um vörukaup eða þjónustu, svo sem dagsetningu viðskipta, hvar viðskiptin áttu sér stað og hvað var keypt. Þetta gerum við til þess að halda utan um kaupsögu og við skil og skipti á vörum.
-
Samskiptasaga.
-
Markaðssetning á netinu, þegar við sendum þér markaðs- og tilboðsefni með tölvupósti eða SMS-skilaboðum s.s. auglýsingar, kynningarefni, afsláttarkóða, tilboð og meðmæli með vörum, enda hafir þú áður veitt samþykki fyrir slíkri notkun.
-
Vefmælingar og vefgreiningar, þegar þú heimsækir vefsíður okkar söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér upplýsingar eins og IP-tölu, tegund vafra, auðkenni tölvunnar og stýrikerfi o.s.frv.
Að jafnaði fáum við framangreindar upplýsingar beint frá þér, en upplýsingarnar kunna þó að koma frá þriðja aðila, t.d. frá stjórnvöldum eða þjónustuaðilum okkar.
Við bendum notendum á að frekari upplýsingar um söfnun upplýsinga má finna á síðu okkar um vefkökustefnu.
Meðhöndlun og tilgangur með söfnun persónuupplýsinga
Tilgangur með söfnun persónuupplýsinga er að geta uppfyllt pantanir viðskiptavina og veitt nauðsynlega þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.
Markmið með söfnun persónuupplýsinga er að laga þjónustu viðskiptavina að þeirra þörfum og til að halda utan um og miðla upplýsingum þannig að vörur viðskiptavina komist til skila.
Frá Jörð meðhöndlar upplýsingar í trúnaði við viðskiptavini. Tilgangurinn er umfram allt að laga þjónustu að viðskiptavinum, veita betri þjónustu og bæta upplifun viðskiptavina af þjónustu fyrirtækisins. Frá Jörð safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þá þjónustu sem óskað er eftir og einstaklingar samþykkja með skilmálum okkar með heimsókn sinni í netverslun eða pöntunum á vörum.
Miðlun persónuupplýsinga til þriðja aðila
Til að veita nauðsynlega þjónustu og koma vörum til skila til okkar viðskiptavina áskilur Frá Jörð sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) samkvæmt persónuverndarlögum.
Persónuupplýsingar eru aldrei seldar eða leigðar til þriðja aðila undir nokkrum kringumstæðum.
Frá Jörð kann að deila upplýsingum í tölfræðilegum tilgangi með samstarfsaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. Frá Jörð afhendir aðeins þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þann tilgang, og er með vinnsluaðilum gerður samningur sem tryggir trúnað og öryggi gagna.
Frá Jörð tryggir vernd persónuupplýsinga í samræmi við gildandi lög og reglur. Þar á meðal er mótun öryggisstefnu, verklagsreglna og samninga við vinnsluaðila um örugga meðferð gagna.
Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar, er möguleiki á að Frá Jörð geti ekki útvegað vörur eða veitt þjónustu. Frá Jörð nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir.
Réttindi notenda til aðgangs að persónuupplýsingum
Einstaklingar eiga rétt á því að Frá Jörð veiti þeim upplýsingar um allar þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur yfir að ráða, og einnig rétt til að fá afrit af slíkum upplýsingum.
Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var aflað.
Póstlistar og skráðir aðgangar viðskiptavina
Frá Jörð ehf. vinnur með tölvupóstföng sem einstaklingar hafa skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista fyrirtækisins. Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Frá Jörð í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Endurskoðun persónuverndarstefnu
Markmið Frá Jörð ehf. er að uppfæra persónuverndarstefnu sína svo hún samræmist þeim kröfum sem gerðar eru hverju sinni og fylgi þeim persónuverndarlögum sem sett eru í landinu á hverjum tíma.
Persónuverndarstefna fyrirtækisins getur því tekið breytingum án fyrirvara.
Vefkökustefna
Frá Jörð ehf. keyrir á vefverslunarkerfi Shopify, sjá þeirra vefkökustefnu hér.
Shopify notar margar mismunandi vefkökur, þar á meðal nauðsynlegar vefkökur til að tryggja virkni vefsins, sem og vefkökur fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla, vefgreiningar og mælingar.
Frá Jörð velur að takmarka notkun vefkaka en notar þær þó ásamt öðrum gögnum til að auðkenna notendur. Notkun á vafrakökum gerir frajord.is kleift að þróa netverslun sína og bæta notendaupplifun, þjónustu og einnig nýtist hún til markaðssetningar.
Með því að nota vefsíðu Frá Jörð samþykkirðu notkun á vefkökum.
Hvað eru vefkökur?
Vefkökur geta flokkast á ýmsa vegu en þeir yfirflokkar á vefkökum sem eru notaðir á vefsíðu Frá Jörð eru:
-
Nauðsynlegar vefkökur
-
Virknikökur
-
Markaðssetningarkökur (markauglýsingakökur/auglýsingakökur)
Vefkökur gera vefupplifun þína betri með því að leyfa síðunni að muna þitt val og þínar aðgerðir.
Frá Jörð notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga og vefgreiningar.