Translation missing: is.accessibility.skip_to_product_info
1 Translation missing: is.general.slider.of 2

Farriers Equine Care

Kláðapakkinn

Venjulegt verð 17,990 kr
  • Á lager

Náttúruleg innihaldsefni

Afhending

Upplýsingar

Kláðapakkinn

Það er fátt leiðinlegra en að horfa uppá hestinn sinn, klóra sér til óbóta. Bæði getur hann skaðað sig líkamlega, eyðinlagt fax og tagl en einnig haft andlega slæm áhrif á hestinn. 

Með þessum vörum getur þú aðstoðað hestinn, vörurnar eru allar gerðar til þess að linna kláða strax og koma í veg fyrir að hesturinn klóri sér. Snemmbær greining og meðferð eru lykilatriði til að ná tökum á þessu vandamáli, þess vegna er frábært að eiga þessar vörur við hendi þegar hestarnir koma inn. 

Stop itch shampoo vinnur með því að eyða öllum sníkjudýrum sem sitja á húð eða í feld, auk þess að endurnærir sjampóið með piparmyntu-olíu og skilur eftir hreinan feld með ferskri lykt. Sjampóið má bera bæði í feld, fax og tagl. Notið eins og venjulegt sjampó, látið standa í 5 mínútur áður en skolað er úr. 

Stop itch Spray inniheldur virk efni sem eru þekkt fyrir að fæla frá mýflugur og bitandi skordýr, auk þess að róa bit til að draga úr kláða og nuddi. Það hentar sérstaklega vel til notkunar meðfram fax- og taglrótinni. Með viðbættum ilmkjarnaolíum úr sítrónu og tröllatré ( eucolyptus). Þessi einstaka formúla hefur verið prófuð og notuð með góðum árangri og hefur reynst ein af áhrifaríkustu vörnum og meðferðum fyrir hesta og asna. 

Stop itch cream kremið er unnið úr jurtum og inniheldur 25% bensýlbenzoat sem hjálpar til við að linna kláða einkenni sem orsakast af bitmýi og fljúgandi skordýrum. Með viðbættum ilmkjarnaolíum úr tröllatré ( eucolyptus) og sítrónu er þetta frábær leið til að halda bítandi skordýrum frá viðkvæmum svæðum. Hentar vel á staði þar sem erfitt er að spreyja. T.d við afturhluta hestsins, í toppinn og í kringum eyrun. 

Frí sending með Dropp eða póstinum fylgir þessu tilboði

 

Kláðapakkinn

Afhverju á ég að velja náttúrulegar vörur fyrir hestinn minn?

SKIL OG SENDING